Home Fréttir Í fréttum 10.04.2019 Óðinsgata og Óðinstorg – Endurgerð

10.04.2019 Óðinsgata og Óðinstorg – Endurgerð

369
0

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:

<>

Óðinsgata og Óðinstorg – Endurgerð – Útboð nr. 14477

Lauslegt yfirlit yfir verkið:
Endurnýjun Óðinsgötu á milli Freyjutorgs og Skólavörðustígs, Spítalastígs á milli Týsgötu og Óðinsgötu ásamt endurnýjun Óðinstorgs á milli Týsgötu og Óðinsgötu í samræmið við hugmyndasamkeppni frá árinu 2008 og nýtt deiliskipulag af torginu.

Verkið felst í:

Endurnýjun innviða Óðinstorgs með setpöllum, stökum sætum, leikhólum, pollum og hjólagrindum.
Jarðvegsskiptum undir götustæðum Óðinsgötu, Týsgötu, Spítalastígs og torgsvæði Óðinstorgs.
Blágrænum ofanvatnslausnum undir gegndræpri hellulögn og gerð regnbeða.
Endurnýjun hellulagnar í gangstéttar- og bílastæðum og á torgsvæði Óðinstorgs
Endurnýjun gatna- og torglýsingar.
Endurnýjun malbiksyfirborðs og kantsteina í götum.
Endurnýjun skilta og merkinga
Lagning snjóbræðslulagna í Óðinsgötu, Týsgötu, Spítalastíg og Óðinstorg.
Lagning snjóbræðslustofns frá Bergstaðastræti 10 að snjóbræðslusvæðum í Freyjutorgi, Óðinsgötu, Týsgötu og Óðinstorgi.
Endurnýjun vatns- og fráveitu í Óðinsgötu og Spítalastíg
Endurnýjun hitaveitu Óðinsgötu og Spítalastíg
Endurnýjun rafmagnsstrengja í Óðinsgötu þ.á.m. háspennustrengs i Spítalastíg.
Fullnaðarfrágangi hellulagna í gangstéttarstæðum og bílastæðum.

Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá og með 26. mars 2019.

Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku.

Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Register“ eða „Nýskráning“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef innkaupadeildar.

Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef innkaupadeildar Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:10 þann 10. apríl 2019.

Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur, nema að bjóðendur óski sérstaklega eftir því. Beiðni verður að hafa borist innkaupadeild 2 virkum dögum fyrir opnun tilboða, á netfangið utbod@reykjavik.is