F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
Brautarholtsvegur milli Hofsgrundar og Arnarholtsvegar – Göngustígur. Útboð nr. 14437
Lauslegt yfirlit yfir verkið:
Verkið felst í að grafa og fylla í göngustíg, grafa og fylla vegna ræsa undir stíg og malbika. Einnig að grafa fyrir, leggja og fylla yfir fjarskiptalagnir (fjölpípurör og heimtaugarpípur), ídráttarrör, símastrengi, hitaveitu- og kaldavatnslagnir sem liggja í stíg að hluta og utan stígs að hluta ásamt niðursetningu á brunnum fyrir Mílu.
Starfsmenn Veitna annast útdrátt strengja, verktaki annasr jarðvinnu og lagningu jarðvíra.
Helstu magntölur eru:
Gröftur 2.500 m2
Fylling 4.000 m3
Malbik 3.400 m2
Skurðsnið – gröftur 2.500 m3
Skurðsnið – fylling(sandur) 1.350 m3
Skurðsnið – fylling(burðarhæf) 975 m3
Kaldavatnslagnir 1.600 m
Hitaveitulagnir 1.500 m
Jarðstrengir og jarðvír 3.700 m
Ljósastólpar 36 stk
Lokaskiladagur verksins er 1. september 2019.
Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá og með 26. mars 2019.
Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku.
Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Register“ eða „Nýskráning“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef innkaupadeildar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef innkaupadeildar Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 10. apríl 2019.
Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur, nema að bjóðendur óski sérstaklega eftir því. Beiðni verður að hafa borist innkaupadeild 2 virkum dögum fyrir opnun tilboða, á netfangið utbod@reykjavik.is