Kveldúlfsgata Borgarnesi
Endurnýjun lagna og gangstétta
Borgarbyggð, Orkuveita Reykjavíkur-veitur ohf, Míla ehf og Rarik ohf, óska eftir tilboðum í verkið.
Verkið er fólgið í lagnavinnu og gerð gangstétta. Fyrir Borgarbyggð skal endurnýja gangstéttar. Fyrir Orkuveitu Reykjavíkur-veitur ohf. skal leggja frárennslislagnir, vatnslagnir og hitaveitu.
Fyrir Mílu ehf. skal leggja fjarskiptalagnir.
Fyrir Rarik ohf. skal sjá um jarðvinnu í sameiginlegum lagnaskurðum.
Helstu magntölur eru:
Lengd lagnaskurða 1750 m.
Niðurföll, endurnýjuð eða lokað 62 stk.
Kaldavatnslagnir, plast ø32-225 mm 1.120 m.
Endurnýjun lagna hitaveitu, stál og pex 2750 m.
Fjarlægja eldri hitaveitulagnir 1160 m.
Heimæðar og inntök, kalt og heitt 65 stk.
Fjarskiptalagnir 3290 m.
Malbikun 3000m².
Steyptur kantsteinn 1000 m.
Skiladagur verksins er 15. október 2015.
Útboðsgögn verða afhent rafrænt og án endurgjalds á skrifstofu Borgarbyggðar, Borgarbraut 14, 310 Borgarnesi frá og með 4. júní n.k. Hægt er að óska eftir gögnum á netfangið gudrunh@borgarbyggd.is eða í síma 433-7100.
Tilboð verða opnuð á sama stað, 19. júní 2015, kl. 11:00.
Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.