Home Fréttir Í fréttum 15.03.2019 Sveitarfélagið Vogar: ” Stapavegur – Yfirlögn malbiks og endurbætur ”

15.03.2019 Sveitarfélagið Vogar: ” Stapavegur – Yfirlögn malbiks og endurbætur ”

272
0

Verkið er fólgið í yfirlögn malbiks og endurbóta götunnar Stapavegar í Vogum sem er tengigata í grónu og fullbyggðu hverfi.

<>

Um er að ræða; Yfirlögn malbiks, Upprif á kantstein og malbiki, steypa kantstein, þökuleggja og annað það sem kemur fram á uppdráttum, í verklýsingu og magnskrá.

Helstu magntölur eru u.þ.b:
Malbik 2500 m²
Kantsteinn 340 m
Þökulögn 650 m²

Verklok skulu vera eigi síðar en 30. júní 2019.

Þeir sem hyggjast bjóða í verkið skulu óska eftir útboðsgögnum með því að senda tölvupóst á netfangið skrifstofa@vogar.is eða hringja í síma 440 6200 og gefa upp nafn, heimilisfang, síma og netfang og fá þá útboðsgögnin send í tölvupósti.

Útboðsgögn verða afhent frá og með fimmtudeginum 28. febrúar 2019.

Tilboðum skal skilað á skrifstofu Sveitarfélagsins Voga, Iðndal 2, 190 Vogar eigi síðar en föstudaginn 15. mars 2019, kl. 11:30 og verða þá opnuð í viðurvist þeirra bjóðenda sem þess óska.