Home Fréttir Í fréttum Ákvörðun Lilju um Víkurgarð á mánudag

Ákvörðun Lilju um Víkurgarð á mánudag

159
0
Framkvæmdir hafa legið niðri frá því að skyndifriðun austurhluta Víkurgarðs tók gildi þann 8. janúar síðastliðinn. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI

Fornminjanefnd telur að markmiðum um vernd minjasvæðis í Víkurgarði verði síður náð með stækkun friðlýsingarsvæðis garðsins eins og tillaga Minjastofnunar gerir ráð fyrir. Þetta kemur fram í bókun nefndarinnar frá 31. janúar síðastliðnum. Eitt af hlutverkum nefndarinnar er að fjalla um tillögur Minjastofnunar að friðlýsingum áður en þær eru sendar ráðherra.

<>

Ákvörðun Lilju Alfreðsdóttur mennta- og menningarmálaráðherra vegna skyndifriðunar Víkurgarðs þarf að liggja fyrir næstkomandi mánudag. Málið hefur verið til umfjöllunar í ráðuneytinu en Minjastofnun ákvað þann 8. janúar síðastliðinn að skyndifriða þann hluta garðsins sem er innan þess reits sem félagið Lindarvatn áformar að reisa hótel á.

Sá hluti Víkurgarðs sem í daglegu tali nefnist Fógetagarður er þegar friðlýstur. Minjastofnun taldi hins vegar nauðsynlegt að stækka friðlýsingarsvæðið um átta metra í austur. Var vísað til þess að ekki hefði náðst ásættanleg niðurstaða um inngang fyrirhugaðs hótels. Þannig yrði Víkurgarður nýttur sem aðkomusvæði hótelsins sem væri algerlega óásættanlegt.

Í fyrrnefndri bókun fornminja­nefndar segir að áform framkvæmdaaðila um inngang að hótelinu hafi ekki í för með sér umráðarétt yfir næsta nágrenni, heldur þurfi þeir að lúta þeim skilyrðum sem Minjastofnun setji.

Þá er brýnt fyrir Minjastofnun, Reykjavíkurborg og framkvæmdaaðilum að ná samkomulagi sem komi til móts við sjónarmið allra aðila þó þannig að vernd minjasvæðisins verði í öndvegi.

Töluverðar deilur hafa staðið um fyrirhugaða hótelbyggingu og hafa heiðursborgarar Reykjavíkur meðal annars mótmælt framkvæmdunum. Í dag stendur félagsskapurinn Verndum Víkurgarð fyrir baráttuskemmtun í Iðnó sem hefst kl. 14.

Í yfirlýsingu sem meðal annars var birt í Fréttablaðinu í gær skorar fjöldi nafntogaðra einstaklinga á Lilju Alfreðsdóttur að friðlýsa austurhluta Víkurgarðs en þar með yrði allur garðurinn, eins og mörk hans voru árið 1838, friðlýstur.

Heimild: Visir.is