Öll leyfi eru í höfn varðandi niðurrif Sementsstrompsins á Akranesi og því er ekkert nema helst veðrið sem stendur í vegi fyrir framkvæmdinni.
Sævar Freyr Þráinsson, bæjarstjóri Akraness, greindi frá því í samtali við mbl.is fyrir áramót að strompurinn yrði sprengdur í tveimur hlutum á fyrstu sex vikum þessa árs en ljóst er að framkvæmdin frestast um einhvern tíma.
Fylgst verður með veðurhorfum og um tveimur vikum eftir að undirbúningur hefst við að bora í strompinn og setja í hann sprengiefni er gert ráð fyrir að hann verði felldur.
„Það er verið að bíða færis í augnablikinu,“ segir Sævar Freyr.
Fyrst verður sprengt í 26 til 27 metra hæð og fjórum sekúndum síðar verður hann sprengdur niðri við rót. Þetta er gert til að koma í veg fyrir að hann falli í átt að íbúabyggð.
Nokkur hús sem eru staðsett alveg við strompinn verða rýmd í öryggisskyni.
Sérfræðingar frá dönsku verkfræðifyrirtæki hafa veitt fyrirtækinu Work North ráðgjöf við niðurrifið.
Heimild: Mbl.is