Home Fréttir Í fréttum Skaftahlíð á hvolfi eftir „heimsmet í flutningum“

Skaftahlíð á hvolfi eftir „heimsmet í flutningum“

326
0
Unnið er að því að standsetja Skaftahlíð 24 fyrir skrifstofur á vegum Landspítalans. Mynd: Vísir/Vilhelm

Allt er á tjá og tundri í Skaftahlíð 24 þessa dagana. Húsnæðið hýsti áður starfsemi fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar, auk þeirra rúmlega 20 útvarps- og sjónvarpsstöðva sem sendar voru út frá Skaftahlíð um árabil.

<>

Síðustu mánuði hefur hins vegar verið unnið að flutningi allrar starfseminnar í höfuðstöðvar Sýnar á Suðurlandsbraut 8 og 10.

Lokahnykkur flutninganna áttu sér svo stað í fyrrinótt, þegar allar útsendingar Stöðvar 2, Stöðvar 2 Sport og hinna 11 sjónvarpsstöðva Sýnar verða fluttar formlega frá Skaftahlíð yfir á Suðurlandsbraut.

Þessum flutningum hefur eðlilega fylgt mikið rask í Skaftahlíð, til að mynda hafa verið grafnir upp fleiri kílómetra af hvers kyns snúrum og köplum sem fylgdu útsendingarstarfseminni.

Veggir hafa verið felldir, klæðningar fjarlægðar og allt gólfefnið rifið burt. Að framkvæmdunum loknum mun Landspítalinn fá afnot af húsinu en til stendur að nýta rýmið undir hvers kyns skrifstofustarfsemi spítalans.

Skrif­stof­ur Land­spít­al­ans eru nú á Ei­ríks­stöðum við Ei­ríks­götu 5, rétt við Hall­gríms­kirkju. Ætlunin er að nota það húsnæði undir klíníska starfsemi spítalans, en t.a.m. hefur verið vöntun á húsnæði fyrir göngudeildir spítalans.

Mynd: Vísir/Vilhelm

50 kílómetrar af köplum
Þær Árdís Björk Jónsdóttir og Sif Sturludóttir, yfirmenn hjá Sýn, eru meðal þeirra sem hafa haft veg og vanda af flutningunum frá Skaftahlíð yfir á Suðurlandsbraut – og þeim þykir mikið til þeirra koma. Það sé hægara sagt en gert að flytja útsendingar 13 sjónvarpsstöðva með húð og hári á milli staða án þess að mikil röskun verði á.

Mynd: Vísir/Vilhelm

 

„Erlendir sérfræðingar sem við höfum rætt við í ferlinu telja nokkuð öruggt að þetta sé heimsmet í flutningum,“ segir Árdís en fyrirtækið Grass Valley, sem sérhæfir sig í flutningum sjónvarpsstöðva, hefur verið Sýn innan handar í ferlinu.

Fá fordæmi séu fyrir því að jafn flókin og umfangsmikil ljósvakamiðlastarfsemi sé flutt á jafn skömmum tíma og gert var í þessu tilfelli. Ekki sé þó fullkomlega hægt að útiloka að ein

Mynd: Vísir/Vilhelm

hverjar truflanir verði á útsendingunum og vona þær að áhorfendur sýni því skilning í ljósi þess gríðarstóra verkefnis sem senn er að baki.

Ný aðalstjórn útsendingar á Suðurlandsbraut 10. Mynd: Vísir/Stefán

Það er ekki ofsögum sagt að verkefnið hafi verið umfangsmikið. Því til staðfestingar bendir Sif á að í nýja húsnæði ljósvakamiðlanna á Suðurlandsbraut hafi verið lagðir um 50 kílómetrar af svokölluðum Cat6 fjarskiptastrengjum og næstum 2 kílómetrar af 24xSM ljósleiðarastrengjum. Þá séu alls „35 eintök af 24 porta krosstengibrettum í nýju höfuðstöðvunum og 600 metrar af Beldan Coax-köplum.“

Mynd: Vísir/Vilhelm

Árdís og Sif segja þetta búnaðarflóð megi að hluta rekja til þess að í upphafi ferlisins hafi verið tekin ákvöðun um að nýta flutningana til að ráðast í allsherjar endurnýjun á útsendingarbúnaði ljósvakamiðlanna.

Mynd: Vísir/Vilhelm

Til að mynda hafi hinn svokallaði kjarnabúnaður verið uppfærður. Það leggi grunn að því að hefja útsendingar í 4K háskerpu í náinni framtíð.

„Þá erum við einnig að færa vídeóflæðið okkar úr því að vera hliðrænt yfir í að vera IP-based,“ segir Árdís og bætir við að allar breytingarnar feli einnig í sér aukið rekstraröryggi útsendinganna.

Með þessum áfanga hefur öll starfsemi Sýnar, sem varð til við sameiningu Fjarskipta og 365 miðla, verið færð í samliggjandi hús við Suðurlandsbraut 8-10.

Síðastliðið sumar voru ný hljóðver Bylgjunnar, FM957 og X977 tekin í notkun, fyrir jól færði fréttastofan útsendingar á kvöldfréttum og í janúar tók Stöð 2 Sport að senda út sérþætti sína frá Suðurlandsbraut.

Heimild: Visir.is