Home Fréttir Í fréttum 07.03.2019 Víkingur. Endurnýjun aðalvallar – Gervigras

07.03.2019 Víkingur. Endurnýjun aðalvallar – Gervigras

288
0

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:

<>

Víkingur. Endurnýjun aðalvallar – Gervigras. EES Útboð nr. 14402

Um er að ræða nýtt gervigras á aðalvöll Víkings við Traðarland 1 í Fossvogi ásamt endurnýjun á föstum vallarbúnaði.

Helstu magntölur eru:
· Heildarflatarmál vallaryfirborðs: 8.816 m2
· Mörk ásamt festingum: 2 stk.
· Hornfánar ásamt festingum: 6 stk.
· Laus mörk: 6 stk
· Viðhaldsbúnaður: 1 stk.

Lokaskiladagur verksins er 22. júní 2019.

Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 11:00, þriðjudaginn 5. febrúar 2019. Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku.

Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Register“ eða „Nýskráning“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef innkaupadeildar.

Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef innkaupadeildar Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 7. mars 2019.

Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur, nema að bjóðendur óski sérstaklega eftir því. Beiðni verður að hafa borist innkaupadeild 2 virkum dögum fyrir opnun tilboða, á netfangið utbod@reykjavik.is