Home Fréttir Í fréttum Verktakar sagðir veigra sér við að andmæla umdeildu gjaldi

Verktakar sagðir veigra sér við að andmæla umdeildu gjaldi

143
0
Hið umdeilda pálmalistaverk í væntanlegri Vogabyggð er fjármagnað með innviðagjöldum eins og komið hefur fram.

Verktakar veigra sér við að leita réttar síns gagnvart hugsanlega ólögmætum innviðagjöldum af ótta við afleiðingar sem það kunni að hafa á framtíðarverkefni þeirra.

<>

Þetta segir Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins (SI). Hann segir samtökin vera að skoða leiðir til að gera eitthvað í málunum.

Innviðagjöldin svokölluðu hjá Reykjavíkurborg komust enn í umræðuna í vikunni þegar greint var frá því að listgjörningurinn með pálmatré í Vogabyggð yrði meðal annars fjármagnaður með slíkum gjöldum lóðarhafa.

Deilt hefur verið hart á þessi gjöld og verktökum sviðið þessi gjaldtaka en Samtök iðnaðarins fengu fyrir um tveimur árum lögfræðiálit þar sem niðurstaða Lex lögfræðistofu var að sterk rök væru fyrir því að gjaldið væri ólögmætt.

Á föstudag fullyrti almannatengillinn Friðjón Friðjónsson í Morgunútvarpi Rásar 2 að hann þekkti aðila sem stæðu í byggingarverkefnum og segðu sögur af hótunum undir rós um að menn myndu ekki fá deiliskipulag ef þeir greiddu ekki þessi gjöld.

„Okkar félagsmenn kannast við að borgin sé í yfirburðastöðu við þessa samningagerð,“ segir Sigurður aðspurður út í ummæli Friðjóns. „Við höfum heyrt dæmi um þetta og hérna er um að ræða býsna háar fjárhæðir í gjaldtökunni.

Fjárhæðir sem kannski hlaupa á hundruðum milljóna fyrir hvert verkefni. Án þess að vera með heildaryfirsýn þá sýnist mér að tekjur Reykjavíkurborgar á síðustu árum hlaupi á milljörðum króna. Það er stærðargráðan.

“ Sigurður segir að þótt borgin tali um samninga milli aðila í þessum efnum þá sé borgin í algjörri yfirburðastöðu.

Aðspurður hvort standi til að láta reyna á lögmæti þessara innviðagjalda fyrir dómi segir Sigurður að hann viti ekki til þess að slíkt standi til en að margir hafi áhuga á því.

„En veigra sér við því vegna þess að, aftur, sveitarfélagið er í yfirburðastöðu. Þannig að menn vilja kannski frekar hafa gott veður varðandi verkefni til framtíðar.“

Aðspurður hvaða úrræði SI hafi til að gera eitthvað í málunum segir Sigurður að samtökin séu að skoða ýmsar leiðir.

„Þessa dagana erum við að afla frekari upplýsinga og dæma um þessi mál. Við höfum áhuga á því að fara lengra með það. Við erum að skoða hvaða farvegur það gæti verið.“

Heimild: Visir.is