Home Fréttir Í fréttum 14.02.2019 Málun í fasteignum Reykjavíkurborgar – Hverfi 6 og 7 og Hverfi...

14.02.2019 Málun í fasteignum Reykjavíkurborgar – Hverfi 6 og 7 og Hverfi 8, 9 og 10

87
0
Mynd: Reykjavik.is

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:

<>

Málun í fasteignum Reykjavíkurborgar – Hverfi 6 og 7. Útboð nr. 14395.
Málun í fasteignum Reykjavíkurborgar – Hverfi 8, 9 og 10. Útboð nr. 14404.

Lauslegt yfirlit yfir verkið:
Um er að ræða endurmálun og nýmálun í ýmsum mannvirkjum Reykjavíkurborgar.
Bjóðendum er heimilt að bjóða í einstök verkefni og/eða öll verkefnin.

Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 13:00, þriðjudaginn 29. janúar 2019.

Smellið á íslenska fánann neðst á síðunni til þess að fá vefsíðuna upp á íslensku.
Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“ eða ,,Register“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef innkaupadeildar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef innkaupadeildar Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 14. febrúar 2019.

Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur, nema að bjóðendur óski sérstaklega eftir því. Beiðni verður að hafa borist innkaupadeild 2 virkum dögum fyrir opnun tilboða, á netfangið utbod@reykjavik.is