Home Fréttir Í fréttum Vonast til að geta boðið út Teigsskógarleið fyrir árslok

Vonast til að geta boðið út Teigsskógarleið fyrir árslok

240
0
Hér má sjá leiðirnar tvær sem tekist var á um fyrir framtíðarlegu Vestfjarðavegar. Grafík/Hlynur Magnússon.

Vegamálastjóri vonast til að geta boðið út sjö milljarða króna framkvæmdir við Vestfjarðaveg um Teigsskóg fyrir árslok eftir að hreppsnefnd Reykhólahrepps samþykkti þá veglínu í vikunni með þremur atkvæðum gegn tveimur. Þetta kom fram í fréttum Stöðvar 2.

<>

Á endanum stóð valið á milli ÞH-leiðar um Teigsskóg og R-leiðar um Reykhóla.

Veglína yfir Djúpafjörð, milli Gróness og Hallsteinsness, samkvæmt Þ-H leið um Teigsskóg. Grafík/Vegagerðin.

Niðurstaðan var sú að karlarnir í hreppsnefndinni, þeir Ingimar Ingimarsson oddviti og Karl Kristjánsson, kusu R-leið og urðu undir, en konurnar þrjár, þær Árný Huld Haraldsdóttir, Embla Dögg Jóhannsdóttir og Jóhanna Ösp Einarsdóttir, mynduðu meirihluta um Teigsskógarleið.

Í höfuðstöðvum Vegagerðarinnar í Reykjavík fylgdust menn spenntir með fréttum að vestan og vegamálastjóri segir að þar gleðjist menn yfir því að geta haldið áfram með verkefnið.

„Við bara erum ánægð með það. Það er gríðarlega mikilvægt að ná að leggja þennan Vestfjarðaveg fyrir Vestfirðinga alla og ég bara vona að auðnan verði með þeim þannig að það takist,“ segir Bergþóra Þorkelsdóttir vegamálastjóri.

Bergþóra segir næstu skref þau að Reykhólahreppur klári aðalskipulagið, sem Skipulagsstofnun þurfi svo að staðfesta. Hún vonist til að Vegagerðin geti sótt um framkvæmdaleyfi eftir 14-16 vikur og að hugsanlegum kærumálum vegna þess verði lokið fyrir áramót.

Brú kemur yfir Þorskafjörð innanverðan, samkvæmt ÞH-leið um Teigsskóg. Grafík/Vegagerðin.

„Við gætum þá, ef Guð lofar og allt gengur vel, byrjað framkvæmdir, – eða boðið þetta út í lok ársins og byrjað framkvæmdir á vormánuðum 2020. Það væri það sem við sæjum þá fyrir okkur.“

Þetta er eitt stærsta verkið á samgönguáætlun næstu fimm ára upp á nærri sjö milljarða króna. Teigsskógarleiðin felur í sér um 20 kílómetra styttingu Vestfjarðavegar. Gert er ráð fyrir að þrír firðir verði brúaðir; Þorskafjörður, Djúpifjörður og Gufufjörður.

En hvenær verður vegurinn tilbúinn?

„2023 circa. Og þá erum við bara að gefa okkur að hlutirnir gangi vel,“ svarar Bergþóra vegamálastjóri.

Heimild: Visir.is