Home Fréttir Í fréttum Sundlaug í Úlfarsárdal og knatthús í Breiðholti stærstu verkefnin

Sundlaug í Úlfarsárdal og knatthús í Breiðholti stærstu verkefnin

359
0
Sundlaugin í Úlfarsárdal. Myndin er tölvuteiknuð og sýnir ekki endanlegt útlit. MyndÞ VA arkitektar

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri kynnti fjárfestingar Reykjavíkurborgar á árlegu Útboðsþingi Samtaka iðnaðarins í dag.

<>

Uppbygging innviða er að stærstum hluta annars vegar fasteignir borgarinnar ásamt búnaði í þær og hins vegar gatnagerð og uppbygging í umhverfi íbúa.

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri segir í tilkynningu að umfangsmiklar framkvæmdir séu í gangi hjá borginni.

„Þar er fjárfestingin í íþróttamannvirkjum stærst að þessu sinni, en við erum með sérstaka áherslu á austurborgina með sundlaug í Úlfarsárdal og knatthús í Breiðholti sem stærstu verkefni.

Við ætlum að reisa nýja hverfisbækistöð í Örfirisey og fara í viðhald á Borgarbókasafninu. Í velferðinni erum við að fjárfesta í smáhýsum fyrir skjólstæðinga velferðarsviðs og hjúkrunarheimili við Sléttuveg er að rísa.

Þá erum við að opna nýjar leikskóladeildir og taka í gegn skólalóðir. Svo setjum við 450 milljónir í lagningu hjólastíga, byrjum að hanna Borgarlínu og meira en 1200 milljónir króna í að malbika götur.

Fjárfesting borgarinnar í innviðum af ýmsu tagi hafa aldrei verið umfangsmeiri,” segir Dagur.

Í ár verður fjárfest í fasteignum og stofnbúnaði fyrir 9 milljarða og þar af fara rúmir 3,4 milljarðar til íþrótta- og tómstundamála, en Íþróttamiðstöð í Úlfarsárdal og Íþróttamannvirki ÍR í Mjódd taka þar mest til sín.

Framlög til skóla- og frístundamála nema tæpum 2,4 milljörðum og fer stór hluti til nýrra leikskóladeilda, auk þess sem settur er hálfur milljarður til endurgerðar leikskóla- og skólalóða.

Til gatna- og umhverfisframkvæmda í ár fara einnig um 9 milljarðar og þar af eru nærri 2,8 milljarðar til uppbyggingar í nýjum hverfum s.s. Vogabyggð, Gufunes, Hlíðarenda, Úlfarsárdal og Vesturbugt.

Gatnagerð í Miðborginni verður einnig fyrirferðarmikil en haldið verður áfram með endurgerð Hverfisgötu, Frakkastígs, Tryggvagötu og aðrar framkvæmdir á Austurbakka og Austurhöfn s.s. Steinbryggju.

Samanlagt eru framlög til framkvæmda í Miðborginni 1,3 milljarður. Auk þessar miklu endurgerðar á götum verður haldið áfram með átak í malbikun gatna og verður rúmum 1,2 milljarði króna varið í það verkefni.

Margvísleg umhverfis- og aðgengismál eru á listanum s.s. LED-væðing götulýsingar fyrir 440 milljónir og gerð göngu- og hjólastíga fyrir 450 milljónir.

Borgarlínan er í ár á undirbúningsstigi en 200 milljónum verður ráðstafað til hennar.

Til annarra framkvæmda fara síðan 2,2 milljarðar króna og þar af er um milljarður í hugbúnað og tölvubúnað Reykjavíkurborgar. Þá hefur 450 milljónum króna verið ráðstafað í íbúalýðræðisverkefnið Betri hverfi.

Heimild: Visir.is