Allt að 330 íbúðir og 230 hótelherbergi eða hótelíbúðir verða á svokölluðum Héðinsreit í miðborg Reykjavíkur, samkvæmt nýrri deiliskipulagstillögu sem er á leið í kynningu.
Borgarráð Reykjavíkur samþykkti að auglýsa skipulagið á fundi sínum í síðustu viku.
Héðinsreitur er kenndur við Héðinshús, sem stendur við Seljaveg 2 og hýsir í dag meðal annars Reykjavíkurapótek, en var byggt á árunum 1941-1943 undir Vélsmiðjuna Héðin.
Lóðin Vesturgata 64 er einnig á Héðinsreit, en þessar tvær lóðir eru nú skipulagðar saman og hafa arkitektastofurnar Jvantspijker í Hollandi og Teikn arkitektaþjónusta unnið að nýju deiliskipulagi í sameiningu undanfarin tvö ár.
FGildandi deiliskipulag á reitnum er frá 2007.
Arkitektar Teikn starfa fyrir félögin Seljaveg og S2 Norður, sem eiga lóðina að Seljavegi 2, en Jvantspijker fyrir fasteignaþróunarfélagið Festi og Mannverk, sem eiga Vesturgötu 64.
Við Seljaveg 2 verður hótel Center Hotel, auk um 100 íbúða, en um 230 íbúðir á lóð Vesturgötu 64.
Ítarlega var fjallað um áform Festar á þeirri lóð í Morgunblaðinu í lok nóvember sl.
Samkvæmt deiliskipulagstillögunni verða bakhús við Seljaveg 2 rifin og þétt randbyggð byggð á öllum reitnum, stórgerðari hús niðri við Ánanaust en skali bygginganna verður öllu minni við Seljaveg og Vesturgötu.
Inngarðar hugsaðir sem almenningsreitir
Þrír inngarðar verða á reitnum samkvæmt skipulaginu og verða þeir opnir almenningi, en áætlað er að þrjár gönguleiðir gangi í gegnum reitinn.
Sérstaklega var tekið fram í bókun meirihluta borgarráðs síðasta fimmtudag að þarna væri verið að gera „nýja almenningsgarða á besta stað í Reykjavík“.
Kolbrún Baldursdóttir, áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins, hafði þó efasemdir um inngarðana hvað birtumagn varðar, en fram kom í bókun hennar frá fundinum að hún hefði áhyggjur af því að skuggasvæðin í þessum görðum verði slík að erfitt verði fyrir plöntur og gróður að þrífast.
Þjónusta á jarðhæðum
Bílastæðakjallari er fyrirhugaður undir stórum hluta lóðarinnar, með á fjórða hundrað bílastæðum, en í tillögunni kemur fram að gert sé ráð fyrir sameiginlegri aðkomu beggja lóða að þessum bílastæðakjallara við Vesturgötu.
Áætlað er að þessi neðanjarðarstæði verði í einhverri samnýtingu íbúa á reitnum og þeirra sem koma þangað keyrandi til þess að sækja þjónustu, sem verður víða á jarðhæðum húsanna, samkvæmt skipulagstillögunni.
Tillagan verður sem áður segir tekin til formlegrar kynningar á næstunni, en þá hafa hagsmunaaðilar og aðrir sex vikur til þess að koma með ábendingar og athugasemdir.
Heimild: Mbl.is