Landsnet óskar eftir tilboðum í smíði á forsteyptum undirstöðum og staghellum vegna framkvæmda við nýja Kröflulínu 3(KR3). Línan er um 121 km og er gert ráð fyrir 329 möstrum.
Framkvæmdasvæðinu er skipt í þrjá hluta. Fjöldi eininga á hverjum hluta er áætlaður:
Svæði Fjöldi undirstaða Fjöldi staghellna
I 223 86
II 299 244
III 127 39
Nánari upplýsingar verður að finna á útboðsvef Landsnets þar sem gögnin verða aðgengileg frá 23. janúar 2019.
Tilboðum skal skila til og með 6. febrúar 2019 kl. 14:00.