Hafnarstjórn Fjarðabyggðar óskar eftir tilboðum í ofangreint verk.
Helstu verkþættir eru:
•Slá upp mótum, járnbinda og steypa kantbita, polla, undirstöðu og brunna
•Leggja ídráttarrör fyrir rafmagn
•Slá upp mótum, járnbinda og steypa undirstöðu undir krana
•Leggja vatnslögn og koma fyrir vatnsbrunnum
•Slá upp mótum, járnbinda og steypa þekju, alls um 560 m2
Verkinu skal lokið eigi síðar en 1. júní 2019
Útboðsgögn verða seld hjá Bæjarskrifstofu Fjarðabyggðar frá og með mánudeginum 7. janúar 2019.
Verð útboðsgagna er 5.000 kr.
Skila skal tilboðum á sama stað fyrir kl. 14:00 fimmtudaginn 31. janúar 2019 og verða þau opnuð þar.