Mikil byggingarumsvif við lóðina Haðaland 5 í Fossvogi vekja nú athygli nágranna. Einbýlishúsið sem þar stóð hefur verið rifið og byggja á nýtt hús sem verður nokkuð stærra að flatarmáli.
Það eru hjónin Margrét Jóna Gísladóttir viðskiptafræðingur og Sigurður Þ.K. Þorsteinsson vélfræðingur sem eiga Haðaland 5 og munu byggja hið nýja hús.
Þau Margrét Jóna og Sigurður höfðu ríflega 3,2 milljarða króna í fjármagnstekjur á árinu 2016 samkvæmt frétt sem Kjarninn birti fyrir tæpum þremur mánuðum og unnin var upp úr gögnum vefsíðunnar tekjur.is.
Margrét hafði átt 31,25 prósenta hlut í útgerðarfélaginu Ögurvík, jafnstóran hlut og tvö systkini hennar. Þau seldu Ögurvík til útgerðarfyrirtækisins Brims á árinu 2016 og þaðan stafa fjármagnstekjurnar.
Margrét og Sigurður búa í raðhúsi í Brautarlandi í Fossvoginum, skammt frá Haðalandi þar sem þau keyptu fyrrnefnt einbýlishús.
Samkvæmt gögnum sem send voru byggingarfulltrúanum í Reykjavík reyndist vera mikil mygla í Haðalandshúsinu sem nú hefur verið rifið.
Ekki var þörf á að grenndarkynna framkvæmdina enda þó nokkur fordæmi komin fyrir stækkun húsa í Fossvogi eftir ýmsar breytingar sem gerðar hafa verið á deiliskipulagi þar.
Nýja húsið í Haðalandi á að verða samtals 284 fermetrar með bílageymslu. Eldra húsið var 229 fermetrar með bílskúr. Viðbótin nemur því um 55 fermetrum sem er talsvert minni stækkun en verið hefur í sumum öðrum endurbyggingum í Fossvogi.
Samkvæmt teikningu EON arkitekta er hins vegar „óuppfyllt sökkulrými“ með fullri lofthæð undir húsinu þannig að nýtanlegur gólfflötur þess fer væntanlega yfir 500 fermetra.
Heimild: Visir.is