Mygla í nokkurra ára gamalli þakklæðningu, óþéttir útveggir, laust gler í gluggum og mikil vinna við að endurnýta innanhússklæðingu er allt meðal skýringa á því hvers vegna framkvæmdir á Gröndalshúsi í Reykjavík spóluðu nær 200 milljónir fram úr áætlun.
Þetta kemur fram í svari skrifstofu eigna og atvinnuþróunar við framhaldsfyrirspurn borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um kostnað við endurbæturnar sem lögð var fram á fimmtudag. Í fyrirspurn fulltrúans er bent á að upphafleg fjárhagsáætlun hafi hljóðað upp á 40 milljónir en verkið hafi að endingu kostað borgina 238 milljónir. Framúrkeyrslan hefur verið gagnrýnd.
Í svari borgarinnar segir að þegar ákveðið var árið 2015 að hefja framkvæmdir við að færa Gröndalshús á varanlegan stað, frá Grandagarði þar sem það hafði verið geymt að Vesturgötu 5b í Grjótaþorpinu í miðbæ Reykjavíkur, hafi fjárheimildin verið 50 milljónir króna, auk þeirra 27,5 milljóna sem þegar hafði verið varið í húsið á fyrri árum.
Eftir að búið var að flytja húsið á nýjan grunn og farið var að gera það upp að innan komu hins vegar í ljós margir alvarlegir gallar. Borgarráðsfulltrúi Sjálfstæðisflokksins óskaði skýringa á þessari framúrkeyrslu og eru ástæðurnar fyrir þessum mikla kostnaðarauka listaðar í svarinu. Þær má sjá hér á meðfylgjandi mynd.
Enn fremur segir í svari borgarinnar að endurgerð hússins hafi ekki verið boðin út, heldur hafi hún verið hluti rammasamnings sem gerður var við Minjavernd.
Hið merka Gröndalshús var komið í mikla niðurníðslu á árum áður en lengi var deilt um framtíð þess. Húsið var tekið í notkun á nýjum stað við Vesturgötu 5b í júní í fyrra en Reykjavíkurborg ákvað að eiga húsið og nýta til menningarstarfsemi tengdrar Reykjavík bókmenntaborg Evrópu. Þar er nú sýning um Benedikt Gröndal á aðalhæð þess, íbúð í kjallara og vinnuaðstaða fyrir fræðimenn á efri hæð.
Heimild: Visir.is