Orkuveita Reykjavíkur – veitur ohf. óska eftir tilboðum í verkið:
Úthlíð í Biskupstungum
Dælustöð og lagnir
Útboðverkið felst í að steypa upp undirstöður og botnplötu fyrir dælustöð í landi Úthlíðar og flytja eldri byggingu frá núverandi staðsetningu við Þóroddstaði í Ölfusi að Úthlíð. Verktaki skal einnig leggja nýlagnir veitna.
Verklok heildarverks er 04.09.2015.
Verkið er nánar skilgreint í útboðsgögnum ORV-2015-13.
Tilboð verða opnuð hjá Orkuveitu Reykjavíkur – veitum ohf. Bæjarhálsi 1, 110 Reykjavík, þriðjudaginn 4. júní 2015, kl. 11:30.