Vegagerðin óskar eftir tilboðum í endurbyggingu 3,7 km kafla Skorradalsvegar frá Vatnsendahlíð að Dagverðarnesi, ásamt útlögn klæðingar.
Helstu magntölur eru:
- Bergskeringar 3.600 m3
- Fyllingar og fláafleygar 40.500 m3
- Styrktarlag 14.300 m3
- Burðarlag 4.250 m3
- Tvöföld klæðing 25.500 m2
- Ræsalögn 460 m
Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 1. september 2020.
Útboðsgögn verða seld á minnislykli hjá Vegagerðinni Borgarnesi, Borgarbraut 66 og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með mánudeginum 10. desember 2018. Verð útboðsgagna er 2.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 fimmtudaginn 20. desember 2018 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.