„Það er búið setja gerðardómssamning milli aðila og aðilar munu skila gögnum fljótt og vel inn til gerðardómsins og von á því að niðurstaða hans liggi fyrir innan nokkura mánaða. Þetta snýst um fjárkröfur.
Verktakinn telur sig hafa fjárkröfur áhendur okkur að sama skapi höfum við sem verkkaupi verulegar fjárkröfur í tafarbótum sem skipta tugum ef ekki hundruðum milljóna,“ segir Gunnar.
Deilurnar hafa staðið í um eitt og hálft ár. Verktakinn telur sig einnig hafa fjárkröfur á hendur Nýjum landspítala vegna þess að hönnun verksins hafi verið ábótavant en fyrirtækið hafnar því. Þá greinir verktaka og verkkaupa á um hver ber ábyrgð á tímasetningu umsaminna verkloka og lokafrágangi á húsinu og lóðinni í kring.
„Dagsektirnar byrjuðu að tikka í verkinu fyrir þó nokkuð mörgum mánuðum og nema allt að 900 þúsund krónum á dag þannig það er um verulegar fjárhæðir að ræða,“ bætir Gunnar við.
Sjúkrahótelið átti að vera tilbúið í fyrrasumar en nú lítur út fyrir að húsið verði afhent til rekstrar í byrjun janúar. „Það var sameiginlegt mat að það væri betra að verkkaupi tæki að sér að klára lokafráganginn á húsinu. Enda hafði verkframvindan verið óveruleg síðustu mánuði,“ segir Gunnar.
Hvern ætlið þið að fá í það verk? „Nú tökum við fyrir samninga við þá aðila meðal annars sem voru undirverktakar í verkinu og meistarar á húsinu og sjáum hvernig þessu framvindur. Þetta eru það óverulegir verkþættir að það þarf ekki að bjóða þá út.“
Heimild: Ruv.is