F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar óskar eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
Fellsvegur. Gatna- og brúargerð, útboð nr. 13507
Verkið felst m.a. í því að grafa og fylla í götustæði, grafa og fylla í göngustíg, brúargerð, malbikun og yfirborðsfrágang. Einnig að grafa fyrir, leggja og fylla yfir ídráttarrör og fjölpípurör Mílu, fráveitu- og vatnslagnir sem liggja í götu- og/eða stígstæði.
Helstu magntölur eru:
• Gröftur 13.000 m3
• Fylling 25.000 m3
• Malbikun 3.900 m2
• Kantsteinn 1.060 m2
• Steypumót 840 m2
• Járnbending 49.000 kg
• Eftirspennt járn 8.800 kg
• Steypa 360 m3
• Fráveitulagnir 860 m
• Vatnsveitulagnir 270 m
• Fjarskiptalagnir 540 m
• Götulýsing 625 m
• Reisa ljósastólpa 17 stk
• Vegrið 235 m
• Þökulögn 1.000 m2
Lokaskiladagur verksins er 15. nóvember 2015.
Útboðsgögn á geisladiski verða seld á 3.000 kr., frá miðvikudeginum 27. maí 2015 í þjónustuveri Reykjavíkurborgar, Borgartúni 12–14, 1.hæð, 105 Reykjavík.
Opnun tilboða: Þriðjudaginn 9. júní 2015 kl. 10:00, í Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík. Tilboðum skal skilað í þjónustuver Reykjavíkurborgar.
Heimild: Reykjavíkurborg