Leigufélagið Heimavellir gera ráð fyrir að uppbygging 100 íbúða á Veðurstofureitnum komi til með að kosta tæplega 2 milljarða króna. Væntar leigutekjur á ári eru áætlaðar 165 milljónir króna og að EBITDA framlegð verð 120 milljónir miðað við verðlag dagsins í dag.
Guðbrandur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Heimavalla, segir Veðurstofureitinn gott dæmi um það hvernig félagið vilji vinna til framtíðar. „Áhersla er lögð á lágan rekstrar- og byggingarkostnað sem endurspeglast í hagkvæmu leiguverði. Þá er verið að koma til móts við mikla þörf á markaði fyrir litlar og hagkvæmar íbúðir,“ segir Guðbrandur.
Íbúðirnar í rekstur 2021
Félagið hefur unnið hefur að verkefninu í samvinnu við Ístak, Eflu og Glámu-Kím. Gangi áætlanir eftir verða íbúðirnar komnar í rekstur í byrjun árs 2021. Borgarráð samþykkti á fundi sínum fyrr í dag heimild handa skrifstofu eigna og atvinnuþróunar til þess að hefja viðræður við Heimavelli um lóðarvilyrði vegna svokallaðs Veðurstofureits við Bústaðaveg.
Hér er um að ræða hluta af því verkefni Reykjavíkurborgar að fjölga hagkvæmum íbúðum fyrir ungt fólk og fyrstu kaupendur segir í fréttatilkynningu frá félaginu. Veðurstofureiturinn er um 10.000 fm lóð fyrir sunnan Veðurstofuna.
Af hálfu Heimavalla var gerð tillaga um uppbyggingu 100 smáíbúða sem eru skipulagðar í tveimur lágreistum klösum á lóðinni. Allar íbúðirnar hafa svalir eða pall á jarðhæð. Þá hafa íbúar aðgang að sameiginlegu þvottahúsi og fjölnotaherbergi fyrir veislur eða fundi.
Gera ráð fyrir heimsendingar á matvælum
Við mótun tillögunnar var sérstaklega tekið tillit til þarfa ungs fólks og eru ýmsar nýjungar lagðar til sem henta þessum aldurshóp vel segir í fréttatilkynningunni. Komið er til móts við nýjar þarfir á borð við heimsendingar á matvælum og bögglapósti.
Hjólreiðafólki er tryggt gott aðgengi að hjólageymslu á jarðhæð auk þess sem allir leigutakar munu hafa aðgang að deilibílum. Þá er gert ráð fyrir hleðslustöðvum fyrir rafbíla á lóðinni og rafmagnslögnum við öll bílastæði. Aðgengi að íbúðum er frá jarðhæð eða svalagöngum um stigagang eða lyftu. Allar íbúðir verkefnisins falla undir skilyrði algildrar hönnunar.
Næsta skref þessa verkefnis er að ganga frá deiliskipulagi á svæðinu og er vonast til þess að hægt verði að hefja byggingarframkvæmdir í lok næsta árs og að íbúðirnar verði komnar í rekstur í byrjun árs 2021.
Heimild: Vb.is