Hafnarfjarðarbær auglýsir lóðir til einstaklinga og lögaðila í fjölskylduvænu íbúðahverfi í Skarðshlíð. Í skipulagi og hönnun er rík áhersla lögð á heildræna sýn, vistvænt skipulag, grænt yfirbragð og fjölbreytt útisvæði. Svæðið liggur sunnan og vestan Ásfjalls og er skjólsælt svæði umvafið gríðarlegri náttúrufegurð.
Um er að ræða einbýlishúsa-, parhúsa-, raðhúsa-, tvíbýlishúsa- og fjölskylduhúsalóðir til einstaklinga og lögaðila. Einstaklingar ganga fyrir við úthlutun einbýlis- og parhúsalóða. Tveir eða fleiri einstaklingar þurfa að sækja sameiginlega um þær lóðir sem telja fleiri en eina íbúð. Hjón og sambúðarfólk teljast sem einn einstaklingur.
Sótt er um rafrænt á MÍNAR SÍÐUR
Umsókn um lóð verður tekin fyrir á bæjarráðsfundi þegar öll fylgigögn eru komin.
Þá er óskað eftir tilboðum lögaðila í 32 íbúða fjölbýlishúsalóð að Hraunskarð 2. Búið er að marka lágmarksverð í lóðina og teljast tilboð undir lágmarksverði ógild. Tilboð í lóð ásamt öllum fylgigögnum þurfa að berast fyrir kl. 10 mánudaginn 19. nóvember. Sama dag á sama tíma verða tilboðin opnuð. Tilboð í lóð verða tekin fyrir á bæjarráðsfundi fimmtudaginn 22. nóvember.
Allar nánari upplýsingar um allar lóðirnar er að finna HÉR
Heimild: Hafnarfjarðarbær