Vegagerðin fyrir hönd Landgræðslu ríkisins opnaði tilboð 2. október í gerð varnargarðs í Jökulsá á Fjöllum við Skjálftavatn í Kelduhverfi. Varnargarðurinn er 430 m langur og er tilgangur hans að verja vesturbakka árinnar fyrir landbroti.
Helstu magntölur eru:
- Grjót 4500 m³
- Möl (síulag) 1500 m³
- Fylling 6700 m³
Verkinu skal að fullu lokið 1. mars 2019.
Bjóðandi | Tilboð kr. | Hlutfall | Frávik þús.kr. |
Ístrukkur ehf., Kópaskeri | 39.274.433 | 159,1 | 9.155 |
Þ.S. Verktakar ehf., Egilsstöðum | 30.119.079 | 122,0 | 0 |
Áætlaður verktakakostnaður | 24.684.300 | 100,0 | -5.435 |