Home Fréttir Í fréttum Fyrstu leiguíbúðir SS á Hvolsvelli komnar í notkun

Fyrstu leiguíbúðir SS á Hvolsvelli komnar í notkun

266
0
Mynd: Sunnlenska.is/Aðsend

Nýlega fluttu fyrstu starfsmenn SS á Hvolsvelli inn í nýjar leiguíbúðir sem fyrirtækið hefur byggt við Gunnarsgerði á Hvolsvelli.

<>

Af því tilefni heimsótti Benedikt Benediktsson, framleiðslustjóri SS þau Grzegorz Ziolkowski og Justina Ziolkowska sem eru fyrstu íbúar í hinu nýja húsnæði og færði þeim blómvönd frá fyrirtækinu.

Benedikt afhenti þeim Grzegorz og Justyna blómvönd við afhendingu fyrstu íbúðarinnar. Ljósmynd: Sunnlenska.is/Aðsend

„Það er þensla á húsnæðismarkaði og gildir það um Hvolsvöll eins og önnur landssvæði. Því er það sérstakt ánægjuefni að sveitarfélagið og fyrirtækið nái saman um að bjóða hagkvæman valkost  til starfsmanna með þessum hætti. Það er von SS að íbúðirnar falli vel að þörfum starfsmanna og samfélagsins á Hvolsvelli,“ segir Benedikt og bætir við að á þessum tímamótum vilji SS koma á framfæri sérstöku þakklæti til íbúa og samfélags á Hvolsvelli fyrir velvilja og skilning á mikilvægi og þörfum öflugs atvinnulífs.

„Allt frá því að SS flutti kjötvinnslu sína á Hvolsvöll árið 1991 hefur sveitarfélagið Rangárþing eystra stutt dyggilega við uppbyggingu starfseminnar á Hvolsvelli, nú síðast með úthlutun lóða undir leiguíbúðirnar, samkvæmt viljayfirlýsingu sem undirrituð var á 110 ára afmæli SS þann 28. janúar í fyrra,“ bætir Benedikt við.

Í þessum fyrsta áfanga eru átta íbúðir af 24 sem félagið reisir á Hvolsvelli. Hver íbúð er um 50 fermetrar að stærð með einu svefnherbergi, baðherbergi, eldhúskrók og setustofu, auk geymslu. Einnig er útigeymsla við hvert hús. Íbúðirnar eru afhentar fullbúnar utan- og innahúss, með frágenginni lóð og hellulögðum gangstéttum og bílastæðum.

Framkvæmdir við annan áfanga, þ.e. næstu átta íbúðir er hafnar.

Húsin eru léttbyggð með steyptum milliveggjum, útveggir eru úr timbri klæddir með lituðu bárujárni. Mikil áhersla hefur verið lögð á einfaldleika, notagildi og einfalda hönnun. Arkitektahönnun er unnin af Teiknistofu arkitekta, Gylfa Guðjónssyni og félögum, en Mímir fasteignafélag ehf. annast alla aðra hönnun, smíði og frágang íbúðanna innan- og utanhúss ásamt lóðafrágangi. Verkfræðistofan Ferill hafði umsjón og eftirlit með verkinu af hálfu SS. Undirverktakar voru Gröfuþjónusta Þormars sem sá um jarðvinnu, Rafmagnsverkstæði Ragnars um raflagnir og Pípulagnir Helga önnuðust lagnavinnu. Þorsteinn Jónsson sá um hellulögn á bílstæðum.

Heimild: Sunnlenska.is