F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
Arnarhlíð, Valshlíð og Hlíðarendi. Gatnagerð og lagnir 2018 – Útboð nr. 14310
Lauslegt yfirlit yfir verkið:
Verkið felst m.a. í því að rétta núverandi fyllingu af, grafa og fylla og leggja lagnir í skurði vegna fráveitu- og vatnsveitulagna, svo og að grafa og fylla og leggja ídráttarrör í skurði vegna rafveitu-, og götulýsingarlagna, reisa ljósastólpa, malbika og leggja fræsisvarf á yfirborð fyllingar.
Helstu magntölur:
- Malbikun 1600 m²
- Fráveitulagnir 200 m
- Kaldavatnslagnir 140 m
- Ídráttarrör 500 m
Lok framkvæmdatíma: 1. desember 2018
Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – Frá kl. 9:00 þann 4. september 2018.
Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“ eða „Register“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef innkaupadeildar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef innkaupadeildar Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 14:00 þann 18. september 2018.
Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur, nema að bjóðendur óski sérstaklega eftir því. Beiðni verður að hafa borist innkaupadeild 2 virkum dögum fyrir opnun tilboða, á netfangið utbod@reykjavik.is