Gamla flugstöðin á Keflavíkurflugvelli er horfin af yfirborði jarðar. ISAVIA réðst í það verk í vetur að láta rífa bygginguna og fyrirtækið ABLTAK fékk verkið eftir útboð.
Á myndinni má sjá restina af þessari fornfrægu byggingu á Keflavíkurflugvelli.
Samkvæmt skipulagi fyrir Keflavíkurflugvöll mun rísa flugskýli þar sem flugstöðin stóð áður.
Sjónvarp Víkurfrétta fór í kynningarferð um gömlu stöðina áður en rifrildi á henni hófst í upphafi árs og ræddi við Friðþór Eydal, fyrrverandi blaðafulltrúa Varnarliðsins.
Heimild: Vf.is