Home Fréttir Í fréttum 150 herbergja hótel rís við Keflavíkurflugvöll

150 herbergja hótel rís við Keflavíkurflugvöll

456
0
Mynd: Marriott

Nýtt 150 herbergja Courtyard by Marriott flugvallarhótel verður opnað við Keflavíkurflugvöll á næsta ári. Fyrsta skóflustungan að hótelinu verður tekin í dag en framkvæmdir hefjast strax í kjölfarið.

<>

Í tilkynningu frá aðstandendum hótelsins segir að fjármögnun þess sé að fullu lokið og að stefnt sé að opnun haustið 2019. Forsvarsmenn hótelsins telja að mikill vöxtur í tengiflugi í gegnum Keflavíkurflugvöll kalli á stórt flugvallarhótel undir alþjóðlegu vörumerki.

Marriott er stærsta hótelkeðja heims með yfir 6500 hótel og 30 vörumerki í rekstri. Þar af eru rúmlega 1.100 Courtyard hótel og er þau meðal annars að finna við helstu flugvelli í Evrópu. Þá er Marriott keðjan einnig um þessar mundir að undirbúa opnun fimm stjörnu hótels við hlið Hörpu.

Hér má sjá staðsetningu hótelsins.Marriott

Haft er eftir Ingvari Eyfjörð, framkvæmdastjóra Aðaltorgs sem byggir hótelið, að þetta sé stór áfangi fyrir fyrirtækið.

„Kveikjan kom þegar ISAVIA kynnti framtíðarhugmyndir sínar varðandi uppbyggingu flugvallarsvæðisins. Þróun Aðaltorgs hefur staðið yfir undanfarin tvö ár og er liður í frekari uppbyggingu á þjónustu í kringum alþjóðaflugvöllinn.

Samið hefur verið við Íslenska aðalverktaka um byggingu hótelsins og framkvæmdir hefjast strax. Það liggur fyrir glæsileg framtíðarsýn um þróun flugvallarsvæðisins og það er afar áhugavert fyrir okkur í Reykjanesbæ að koma að þeirri uppbyggingu,“ segir Ingvar.

Framkvæmdastjóri sérleyfishafans Capital Hotels, Árni Sólonsson, segir að það sé mikill heiður að fyrirtæki sitt hafi orðið fyrir valinu.

„Marriott er með mjög sterkt vörumerki, þau hafa gert samninga við fjölmörg flugfélög um gistingu fyrir áhafnir og þá munu félagar í tryggðarklúbb Marriott fá tilboð um að koma til Íslands að gista á góðum kjörum.

Þetta verður veglegt flugvallarhótel fyrir bæði viðskiptafarþega og fjölskyldufólk í ferðum sínum um Keflavíkurflugvöll. Ísland hefur stimplað sig inn sem einn eftirsóttasti áfangastaður heims og þá hefur flugvöllurinn góða möguleika á að verða enn mikilvægari tengipunktur í flugi milli heimsálfa á næstu árum.

Það er mikil þekking sem Marriott kemur með enda stærsta hótelkeðja heims. Á móti höfum við mikla reynslu af rekstri hótela í þessum verðflokki hér á landi. Við höfum staðfasta trú á Íslandi sem áfangastað til langs tíma,“ segir Árni.

Heimild: Visir.is