Göngustígur á Þórshöfn
Langanesbyggð óskar eftir tilboðum í gerð göngustígs með malaryfirborði frá gatnamótun Fjarðarvegs og Sunnuvegs á Þórshöfn að tjaldsvæði bæjarins ásamt tengistígum samtals 672 metrar. Um er að ræða almennt útboð í skilningi laga nr. 120/2016.
Áætluð verklok eru 30. september 2018.
Óski bjóðandi eftir nánari upplýsingum eða skýringum á einhverjum atriðum í útboðsgögnum eða verði var við ósamræmi í gögnum sem haft getur áhrif á fjárhæðir í útboðinu, þá skal senda sveitarstjóra Langanesbyggðar skriflega ábendingu/fyrirspurn með tölvupósti á netfangið elias@langanesbyggd.is.
Fyrirspurnum og ábendingum verður svarað skriflega og öllum bjóðendum send fyrirspurnin/ábendingin ásamt svari. Bjóðendur eru hvattir til að kynna sér vel aðstæður á verkstað áður en tilboði er skilað.
Þeir bjóðendur sem eftir opnun og yfirferð tilboða koma til álita sem verktakar skulu, sé þess óskað, láta í té eftirtaldar upplýsingar:
- Ársreikningar síðustu tveggja ára, áritaðir af endurskoðanda. Ef um einstakling með atvinnurekstur í eigin nafni er að ræða, er óskað eftir staðfestum ljósritum af skattaskýrslum.
- Staðfesting frá viðkomandi yfirvöldum um að bjóðandi sé ekki í vanskilum með opinber gjöld.
- Staðfesting frá þeim lífeyrissjóðum, sem stærstur hluti starfsmanna greiðir til, um að bjóðandi sé ekki í vanskilum með lífeyrissjóðsiðgjöld starfsmanna.
- Almennar upplýsingar um bjóðanda, svo sem starfslið, reynslu yfirmanna og nafn þess starfsmanns, sem ber ábyrgð á og annast upplýsingagjöf vegna tilboðsins.
- Skrá yfir undirverktaka er bjóðandi hyggst ráða til verksins.
- Skrá yfir tæki og búnað sem fyrirhugað er að nota við verkið.
- Skrá yfir helstu verk og lýsing á reynslu bjóðanda í sambærilegum verkum.
- Skrá yfir helstu verk sem bjóðandi fyrirhugar að vinna á sama tíma.
Farið verður með þessar upplýsingar sem trúnaðarmál.
Hægt er að skila tilboðum á skrifstofu Langanesbyggðar eða rafrænt í netfangið elias@langanesbyggð.is. Opnun tilboða fer fram á skrifstofu sveitarfélagsins miðvikudaginn 18. júlí 2018 kl.14:00 að viðstöddum þeim bjóðendum sem vilja.
Verkkaupi mun taka lægsta tilboði sem uppfyllir kröfur útboðsgagna eða hafna öllum tilboðum.