Vegagerðin óskar eftir tilboðum í viðhald á götulýsingu. Vinnusvæðið eru þjóðvegir á Suðurlandi frá Hveragerði/Þorlákshöfn í vestri og austur fyrir Kirkjubæjarklaustur, samtals um 1.200 staurar.
Verktími er frá 1. ágúst 2018 og gildistími samnings er til 31. júlí 2021 með möguleika á framlengingu.
Útboðsgögnin eru seld hjá Vegagerðinni Breiðumýri 2 á Selfossi og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með mánudeginum 18. júní 2018. Verð útboðsgagna er 2.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu staði fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 3. júlí 2018 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.