Home Fréttir Í fréttum Alþjóðaflugvelli 30 km nær Reykjavík fylgir mikill ábati

Alþjóðaflugvelli 30 km nær Reykjavík fylgir mikill ábati

141
0
Frá gatnamótum Reykjanesbrautar við Hvassahraun. Mynd: Stöð 2/Egill Aðalsteinsson.

Tímasparnaður sem fylgdi styttingu vegalengda með nýjum alþjóðaflugvelli í Hvassahrauni er metinn allt að 120 milljarða króna virði. Vegalengd frá búsetumiðju höfuðborgarsvæðsins myndi styttast um þrjátíu kílómetra, miðað við Keflavíkurflugvöll. Um þetta var fjallað í fréttum Stöðvar 2.

<>

Það er rétt eins og mislægu gatnamótin í Hvassahrauni hafi verið hugsuð út frá þeirri niðurstöðu Rögnunefndar fyrir þremur árum að þar í hrauninu væri besta svæðið sem gæti sameinað bæði innanlands- og millilandaflugvöll. Fjarlægðin frá búsetumiðju höfuðborgarsvæðisins er í skýrslu nefndarinnar sögð 21 kílómetri, um 30 kílómetrum styttri en til Keflavíkurflugvallar.

Samgönguráðherrann Sigurður Ingi Jóhannsson sagði á Stöð 2 í síðustu viku að hugmyndir um Hvassahraun væru mjög stórar „ef” spurningar og mættu ekki tefja uppbyggingu á Keflavíkurflugvelli.

Hvern einstakling munar um að stytta vegalengd um kannski þrjátíu kílómetra, hvað þá sextíu kílómetra fram og til baka, og þegar við erum að tala um milljónir ferðamanna árlega, þá erum við tala um ábata sem hleypur á gríðarlegum fjárhæðum.

Sigurður Jóhannesson, forstöðumaður Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands.Stöð 2/Sigurjón Ólason.

„Tíminn er bara mjög dýrmætur,” segir Sigurður Jóhannesson, forstöðumaður Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands, sem reiknaði út fyrir Rögnunefnd sparnaðinn við styttingu vegalengda.

„Annarsvegar þá sparast tíminn hjá flugfarþegum, sem þá þurfa ekki að fara alla leið til Keflavíkur úr höfuðborginni. Reyndar lengist leiðin fyrir innanlandsflugið svolítið á móti.

En svo hinsvegar þá sparast tími hérna innanbæjar við það að það byggist upp byggð nær hringiðunni í Vatnsmýrinni en ekki upp í Úlfarsárdal. Það er rúmur helmingurinn af sparnaðinum,” segir Sigurður.

Fyrstu hugmyndir að flugvelli í Hvassahrauni gerðu ráð fyrir að hann yrði í byrjun aðallega sniðinn að þörfum innanlandsflugs. Nú er rætt um að hann þjóni bæði innanlands- og millilandaflugi.Grafík/Úr skýrslu Rögnunefndar.

Með aðferðum hagfræðinnar var sparnaður flugfarþega vegna breyttrar staðsetningar flugvalla talinn 30 til 50 milljarðar, núvirt til 50 ára, og svo bætist við tímasparnaður vegna byggðar í Vatnsmýri.

„Heildarsparnaðurinn var 80 til 120 milljarðar, eitthvað á því bili, af þessu tvennu. Hann verður svo að meta á móti stofnkostnaði og rekstrarkostnaði við nýjan flugvöll, umfram það að reka þessa tvo flugvelli, í Keflavík og hérna í Reykjavík,” segir Sigurður.

Á sama tíma og stjórnvöld áforma að verja allt að 150 milljörðum króna til uppbyggingar á Keflavíkurflugvelli, og hugmyndir eru um að setja annað eins í hraðlest, af því að það er svo langt að fara, hlýtur að vera áleitin spurning hvort skynsamlegra sé að byggja hreinlega nýjan framtíðarflugvöll.

Heimild: Visir.is