Sveitarfélagið Árborg óskar eftir tilboðum í :
„Eyrarbakkastígur 2018“.
Verklok eru 31. október 2018.
Verkið felur í sér akstur og útlagningu styrktarlags á 1,5 km löngum göngustíg meðfram Eyrarbakkavegi.
Helstu magntölur eru:
Neðra burðarlag 4000 m³
Útboðsgögn verða afhent á rafrænu formi frá og með mánudeginum 11. júní 2018. Þeir sem hyggjast gera tilboð í verkið skulu hafa samband við Ingibjörgu skrifstofu Eflu á Suðurlandi í síma 412 6900, eða með tölvupósti í netfangið utbod.sudurland@efla.is og gefa upp nafn, heimilisfang, síma og netfang og fá í kjölfarið útboðsgögnin send í tölvupósti.
Tilboðum skal skila til Eflu verkfræðistofun, Austurvegi 1-5, 800 Selfoss fyrir kl. 11.00 mánudaginn 25. júní 2018 og verða þau opnuð þar að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.