Vegagerðin óskar eftir tilboðum í yfirlagnir með malbiki á Suðursvæði 2018, Hellisheiði – Selfoss.
Helstu magntölur:
-Útlögn malbiks 127.500 m2
-Hjólfarafylling 2.700 m2
-Fræsing 42.700 m2
Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Breiðumýri 2 á Selfossi og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með miðvikudeginum 23. maí 2018. Verð útboðsgagna er 2.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl 14:00 þriðjudaginn 5. júní og verða þau opnuð þar kl 14:15 þann dag.