Vegagerðin óskar eftir tilboði í endurbætur á húseigninni Búðareyri 11-13 á Reyðarfirði. Helstu verkþættir eru endurnýjun þakvirkis og klæðning utanhúss ásamt einangrun og endurnýjun á gluggum á austurhúsi. Innanhúss er rif á gólfefnum, loftum, milliveggjum og klæðningu innan á útveggi. Verktími er 1. júní – 30. október 2018.
Helstu magntölur eru:
- Þakvirki – endurnýjun………… 380 m2
- Utanhússklæðning……………. 290 m2
- Endurnýjun glugga……………..75 m2
- Rif innanhúss………………………..475 m2
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerðinni Búðareyri 7 á Reyðarfirði frá og með föstudeginum 11. maí 2018.
Tilboðum skal skila á sama stað fyrir kl.14:00 föstudaginn 25. maí 2018 og verða þau opnuð þar sama dag.