Í vikunni var undirritaður samningur milli Borgarbyggðar og byggingarfyrirtækisins Eiríkur Ingólfsson ehf. um stækkun og heildarendurbætur á húsnæði Grunnskólans í Borgarnesi. Er samningurinn gerður að undangengnu útboði sem Ríkiskaup sá um fyrir Borgarbyggð.
Framkvæmdir munu hefjast á næstu dögum. Verkið mun standa yfir í þrjú ár og er heildarkostnaður verksins sem samningurinn tekur yfir um 750 millj. kr.
Langþráður áfangi er nú í höfn varðandi endurnýjun og stækkun húsnæðis skólans og stórbætta aðstöðu nemenda og starfsfóks.
Heimild: Borgarbyggd.is