F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
Gangstéttaviðgerðir 2018 – Útboð nr. 14253
Helstu magntölur:
- Steyptar gangstéttar: um 2.600 m2
- Hellulagðar gangstéttar: um 4.200 m2
Lokaskiladagur verksins er 30. apríl 2019.
Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar, frá kl. 13:00 mánudaginn 7. maí 2018 á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is
Vakin er athygi á að senda verður fyrirspurnir vegna útboðsins í gegnum útboðsvef innkaupadeildar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef innkaupadeildar Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:15 þann 22. maí 2018.
Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur, nema að bjóðendur óski sérstaklega eftir því. Beiðni verður að hafa borist innkaupadeild 2 virkum dögum fyrir opnun tilboða, á netfangið utbod@reykjavik.is