Home Fréttir Í fréttum Nýtt 72 herbergja hótel kom með skipi til landsins

Nýtt 72 herbergja hótel kom með skipi til landsins

200
0
Hótel Kría í Vík er staðsett við þjóðveg númer eitt í gegnum þorpið í Vík. Mynd/Pro-Ark teiknistofa

Nýtt 72 herbergja hótel sem er nú verið að reisa í Vík í Mýrdal kom í tveimur ferðum með skipi til landsins frá Noregi. Aðeins tekur fimm mánuði að reisa hótelið.

<>

Vörubílar með löngum vögnum höfðu það hlutverk að flytja einingarnar frá bryggjunni í Þorlákshöfn til Víkur. Í Vík er einingunum raðað saman eins og kubbum og útkoman verður Hótel Kría með rúmlega sjötíu, tuttugu og fimm fermetra herbergjum. Það er Pro-Ark teiknistofa á Selfoss sem er aðalhönnuður og sér um verkefnastjórnun við uppbyggingu nýja hótelsins.

„Þetta er glæsilegt hótel, 72 herbergja og fullkomið af fullkomnustu gerð. Við höfum reynt þennan byggingarmála tvisvar áður á Íslandi. Hótelið kemur frá Moelven í Noregi, hefur reynst vel, er hagkvæmt og gerlegt á svona brjálæðislega stuttum byggingartíma,“ segir Eiríkur Vignir Pálsson, verkefnisstjóri hjá Pro-Ark.

Eiríkur Vignir segir að einingar sem þessar séu mjög hagkvæmar og öruggar, ekki síst í íslensku veðurfari enda hafa þær fengið íslenska vottun. Hótelið er við þjóðveg eitt í gegnum Vík.

En reiknar Eiríkur Vignir að farið verði út í fleiri ný hótel á þessum nótum gangi vel með hótelið í Vík ?

„Já, það liggur nú fyrir hugmynd þess efnis, þetta er verkefni sem gerist mjög hratt og er ofsalega skemmtilegur byggingarmáti“.

Það er ekki bara í Vík í Mýrdal sem það er verið að reisa hótel úr einingum frá Noregi því það stendur til að fara víðar um landið.

„Já, það er mikill áhugi hjá aðilum hér á landi að byggja upp fjölbýlishús á sama hátt enda vitum við öll að það er vöntun á því“, segir Eiríkur Páll.

Eigendur og rekstraraðilar nýja hótelsins eru athafnamennirnir Vilhjálmur Sigurðsson, Hjálmar Pétursson og Sigurður Elías Guðmundsson, allt reyndir menn í hótelrekstri og ferðaþjónustu. Kostnaður við nýja hótelið verður á annan milljarð króna.

Starfsmenn hótelsins verða um 40 og verður það opnað formlega 1. júlí í sumar.

Heimild: Visir.is