Hópur íbúa í Reykjanesbæ sem berst gegn frekari stóriðju í Helguvík mun ásamt hestamannafélaginu Mána efna til kröfugöngu næstkomandi þriðjudag í þeim tilgangi að skora á bæjaryfirvöld í Reykjanesbæ að efna til íbúakosningar um kísilmálmverksmiðju Thorsil í Helguvík. Þetta kemur fram í tilkynningu frá íbúum í Reykjanesbæ.
Þar segir að mikil umræða hafi verið í bæjarfélaginu undanfarið vegna þeirrar stóriðjuuppbyggingar sem fyrirhuguð sé í Helguvík en nýlega skilaði Skipulagsstofnun áliti sínu á umhverfismati vegna kísilmálmverksmiðju Thorsil.
Þá hefur Silcon United aflað sér nauðsynlegra leyfa til byggingar kísilmálmverksmiðju á næstu lóð. Þessui til viðbótar hóf Norðurál framkvæmdir við byggingu álvers fyrir fáum árum en þær framkvæmdir hafa legið niðri um tíma.
Hestafólk uggandi
„Áhyggjur bæjarbúa snúa fyrst og fremst að nálægð þessara stóriðjuverksmiðja við íbúahverfi bæjarins með tilliti til hugsanlegrar mengunar en aðeins er um 1,5km frá þeim að nyrstu og vestustu hverfunum. Þá er hestafólk mjög uggandi en hesthúsahverfið á Mánagrund og beitarland þess lendir allt innan þynningarsvæðisins þar sem mengun má fara yfir viðmiðunarmörk,“ segir í tilkynningunni.
Haldnir hafa verið tveir íbúafundir nýlega vegna málsins. Þá hefur hópur íbúa haldið úti Facebook-síðu undir heitinu Helguvík: Vilt þú njóta vafans?. Hópurinn telur mikinn vafa leika á útreikningum í umhverfismati um loftdreifingu og mengun og vill að heilsa íbúa og velferð dýra fái að njóta vafans.
Aldrei náist sátt án kosninga
Hópurinn telur að aldrei muni nást sátt meðal íbúa Reykjanesbæjar um þetta stóra mál öðruvísi en með íbúakosningu. Einungis þannig muni fást lýðræðisleg niðurstaða, hver sem hún verði . Telur hópurinn að nú reyni á framkvæmd þess sem talað var um fyrir kosningar um lýðræðisleg vinnubrögð og meira samráð við íbúana.
Gangan hefst kl. 17:30, þriðjudaginn 12. maí við smábátahöfnina í Grófinni. Þaðan munu hestar og fólk ganga upp Hafnargötuna, inn að ráðhúsinu við Tjarnargötu, þar sem hópurinn mun afhenda oddvitum bæjarstjórnar formlega áskorun þessa efnis.
Heimild: Vísir.is