Verkið er 2. áfangi í endurgerð lóðar Háaleitisskóla-Hvassaleiti við Stóragerði 11A, 108 Reykjavík. Verkið er yfirborðsefni fyrir 2. áfanga endurgerð lóðar grunnskólans Háaleitisskóla-Hvassaleiti við Stóragerði 11A, 108 Reykjavík.
Bjóðandi sér um að útvega og ganga frá yfirborðsefnum kringum leiktæki og á önnur öryggissvæði eða sérstakar merkingar í yfirborð.
Verktaki á vegum verkkaupa sér um alla jarðvinnu fyrir yfirborðsefnin.
Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 11:00 þann 23. mars 2018.
Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“ eða „Register“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef innkaupadeildar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef innkaupadeildar Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:15 þann 17. apríl 2018.
Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur, nema að bjóðendur óski sérstaklega eftir því. Beiðni verður að hafa borist innkaupadeild 2 virkum dögum fyrir opnun tilboða, á netfangið utbod@reykjavik.is