Meirihluti bæjarstjórnar Reykjanesbæjar hefur samþykkt að rífa Sundhöll Keflavíkur sem teiknuð var af Guðjóni Samúelssyni, húsameistara ríkisins, árið 1937.
Ragnheiður Elín Árnadóttir, fyrrverandi iðnaðar-og viðskiptaráðherra, greinir frá þessu á Facebook-síðu sinni en hún hefur verið baráttukona fyrir því að Sundhöllin fái að vera. Samkvæmt deiliskipulagstillögu stendur til að byggja fimm hæða hús á lóð Sundhallarinnar.
„Jæja…þá liggur það fyrir. Meirihluti bæjarstjórnar Reykjanesbæjar hefur samþykkt breytingu á deiliskipulagi vegna Sundhallar Keflavíkur og þar með heimilað niðurrif á þessu sögufræga húsi sem teiknað er af Guðjóni Samúelssyni. Skömmin er þeirra,“ segir Ragnheiður Elín á Facebook-síðu sinni.
Hún segir þessa niðurstöðu vera sér gríðarleg vonbrigði og að bæjaryfirvöld hafi brugðist í málinu. Þá segir Ragnheiður Elín að það hafi verið ótrúlegt að hlusta á formann bæjarráðs og forseta bæjarstjórnar í umræðunni.
„Ég mun fara ítarlega yfir það síðar en forherðing er það orð í sem mér dettur fyrst í hug.
En málinu er hvergi nærri lokið. VIð munum leita allra leiða til þess að koma þessu máli farsællega í höfn. Það eru skýrir ágallar á afgreiðslu málsins vegna vanhæfis nefndarmanns í umhverfis- og skipulagsráði sem skera þarf úr um hjá viðeigandi aðilum, og svo munum við að sjálfsögðu beita okkur fyrir skyndifriðun hússins,“ segir Ragnheiður Elín.
Samkvæmt tillögu að deiliskipulagsbreytingu er gert ráð fyrir núverandi lóð Framnesvegar 11 stækki yfir á Framnesveg 9, þar sem Sundhöllin er, og Básveg 11. Með því megi reisa þrjú 4-5 hæða hús með allt að 87 íbúðum. Í tillögunni segir að með stækkun lóðarinnar „gefst tækifæri á að raða byggingum innan lóðar við sjávarlínu, svo allir íbúar hafi útsýni til sjávar og þar með auka gæði íbúðanna.“
Svo byggja megi á lóð Sundhallarinnar þurfi hún að víkja en í staðinn er gert ráð fyrir að grunni Sundhallarinnar verði haldið eftir og efnt verði til hugmyndasamkeppni um um útfærslu minnisvarða um sundmenningu á Suðurnesjum.
Heimild: Visir.is