Íslenska ríkið hefur hagnast um ellefu milljarða króna á sölu fasteigna Varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli. Ásókn í íbúðarhúsnæði er svo mikil að fjárfestar huga nú að nýjum húsbyggingum á gamla varnarsvæðinu. Frá þessu var greint í fréttum Stöðvar 2 og í þættinum „Um land allt“ í kvöld.
Þegar bandaríski herinn fór haustið 2006 eignaðist ríkið allar húseignir á svæðinu, þar á meðal atvinnuhúsnæði, skóla og nærri tvöþúsund íbúðir og íbúðareiningar.
Vallarsvæðið, sem áður hýsti nærri sex þúsund manns, var eins og draugabær fyrst eftir brottför hersins, sagði Hjálmar Árnason, framkvæmdastjóri Keilis.
„Sumir vildu bara fara með ýtu á þetta og láta Kanann skila þessu eins og hann tók við því og sá í. Það var nú sem betur fer ekki gert,“ sagði Hjálmar.
Til að halda utan um eignasafnið stofnaði ríkið Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar, sem kallast einnig Kadeco.
„Okkur var falið að koma þessu sem fyrst í borgaraleg not. Og nú, ellefu árum síðar, höfum við selt nánast hvern einasta fermetra sem félagið fékk,“ sagði Marta Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Kadeco.
Á Ásbrú búa núna um þrjúþúsund manns, fleiri en á Ísafirði. Þetta reyndist svo sannarlega ekki verðlaust.
„Nú hefur félagið skilað um ellefu milljörðum í ríkissjóð í hagnað af verkefninu. Þetta hefur náttúrlega kostað helling en það hefur hins vegar verið hreinn hagnaður, sem er ellefu milljarðar,“ sagði Marta.
Fasteignafélagið Ásbrú íbúðir keypti íbúðir af ríkinu í fyrra eftir útboð og er nú byrjað að endurselja hluta þeirra til einstaklinga. Þar vilja menn byggja meira.
Ingi Júlíusson, framkvæmdastjóri hjá Ásbrú íbúðum, segir augljóst, sé horft til næstu 10-15 ára, að Ásabrúarsvæðið muni gegna lykilhlutverki í þeirri miklu uppbyggingu, sem framundan sé á Reykjanesi, með kannski 30-50 prósenta fjölgun íbúa. Vegna vaxtar í kringum flugvallarstarfsemina þurfi að byggja þrjú til fimm þúsund íbúðir á Reykjanesi og nokkurhundruð þeirra muni rísa á Ásbrú.
„Ég hallast að því að það séu meiri líkur en minni á að við munum byggja hérna á næstu tveimur árum,“ sagði Ingi.
Heimild: Visir.is