Vegagerðin óskar eftir tilboðum í yfirlagnir með klæðingu á Austursvæði 2018.
Helstu magntölur eru:
- Yfirlagnir með einföldu lagi klæðingar 384.000 m2
- Yfirlögn með kílingu 32.000 m2
- Flutningur steinefna 5.800 m3
- Flutningur bindiefna 654 tonn
Verkinu skal að fullu lokið 1. september 2018.
Útboðsgögnin verða seld hjá Vegagerðarinnar Búðareyri 7 á Reyðarfirði og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með miðvikudeginum 14. mars 2018. Verð útboðsgagna er 2.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 27. mars 2018 og verða þau opnuð þar 14:15 þann dag.