F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í verkið:
Freyjutorg, endurnýjun 2018. Djúpgámar, og dvalarsvæði, útboð nr. 14155.
Verkið felst í megindráttum í endurnýjun svæðis á gatnamótum Freyjugötu, Bjargarstígs og Óðinsgötu.
Helstu verkþættir eru:
Jarðvinna og fullnaðarfrágangur djúpgáma, ný snjóbræðsla á gatnamótum ásamt hellululögn, gerð torgs með setbekk og endurnýjun gatnalýsingar ásamt lýsingar á torgi.
Helstu magntölur eru:
· Upprif á föstu yfirborði: 700 m²
· Losun klappar: 40 m³
· Uppgröftur: 115 m³
· Malarfylling: 160 m³
· Fráveita, lagnir: 18 m
· Fráveita, brunnur: 1 stk.
· Ný niðurföll og færsla niðurfalla: 2 stk.
· Færsla hitveitulagnar, ø63mm: 25 m
· Jarðstrengir: 140 m
· Snjóbræðsla, ø25mm: 2.550 m
· Stálskápur fyrir stjórnbúnað: 1 stk
· Torgljós: 2 stk
· Grásteinsbekkur: 1 stk
· Leiktæki: 1 stk
· Grásteinskantsteinn: 110 m
· Malbikun, sögun: 25 m
· Stéttar og steinlagnir: 670 m²
· Rótarburðarlag og ræktunarjarðvegur: 65 m3
· Tré: 6 stk
· Skilti, ný: 1 stk
Heildarverki lýkur 1. ágúst 2018 nema ræktun sem lýkur 15. september.
Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 12:00 þann 9. mars 2018.
Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku.
Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Register“ eða „Nýskráning“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef innkaupadeildar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef innkaupadeildar Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 26. mars 2018.
Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur, nema að bjóðendur óski sérstaklega eftir því. Beiðni verður að hafa borist innkaupadeild 2 virkum dögum fyrir opnun tilboða, á netfangið utbod@reykjavik.is