F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
Hverfið mitt 2018 vesturhluti, útboð 1– Vesturbær og Miðborg. Útboð nr. 14203.
Lauslegt yfirlit yfir verkið:
Verkið felst í framkvæmdum á hluta þeirra verkefna sem hlutu kosningu í gegnum verkefnið Hverfið mitt 2018 í vesturhluta Reykjavíkurborgar.
Í þessu verki er um að ræða verkefni í hverfum 1 og 2, þ.e. Vesturbæ og Miðborg. Verkefnin eru fjölbreytt og eru helstu verkliðir jarðvinna, hellulögn, og þökulögn
Helstu magntölur eru:
· Gröftur 370 m3
· Fylling 330 m3
· Hellulögn 350 m2
· Þökulögn 300 m2
Verklok: September 2017
Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 14:00 þann 15. mars 2018.
Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“ eða „Register“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef innkaupadeildar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef innkaupadeildar Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 3. apríl 2018.
Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur, nema að bjóðendur óski sérstaklega eftir því. Beiðni verður að hafa borist innkaupadeild 2 virkum dögum fyrir opnun tilboða, á netfangið utbod@reykjavik.is