Teikningar að húsi sem byggja átti í stað húss sem undirlagt er veggjatítlum í Hafnarfirði fást ekki samþykktar hjá bæjaryfirvöldum sem draga í efa mat sem eigendur létu gera á ástandi hússins.
Húsið á Austurgötu 36 var dæmt ónýtt í apríl 2017 vegna veggjatítlu og myglu. Var það gert eftir ástandsskoðun fyrirtækisins Verksýnar sem unnin var fyrir eigendur hússins. Þeir óskuðu eftir að fá að rífa húsið og reisa þar nýtt og stærra hús sem í umsókn um breytingu á deiliskipulagi er sagt eiga að samræmast umhverfi á sem bestan hátt.
Núverandi hús er úr timbri, járnklætt og stendur á steinkjallara. Það var byggt árið 1904 og því friðað en Minjastofnun féllst á ósk eigandans í júlí í fyrra og afnam friðunina. Minjastofnun kvaðst ekki gera athugasemdir við að húsið yrði rifið.
Í umsögn skipulagssviðs Hafnarfjarðar um umsókn húseigendanna kemur enn fremur fram að athugasemdir hafi borist frá fjórum aðilum þegar breytingin var auglýst. Var það frá Byggðasafni Hafnarfjarðar og úr þremur nærliggjandi húsum. Tekið er undir flestar þessar ábendingar í umsögninni. Þær lúta meðal annars að fyrirferð nýja hússins, byggingarefni og útliti.
Vilja eins hús á reitinn
Bæjarminjavörður lagði til að allra leiða yrði „leitað til að vernda viðkomandi hús og gera það upp í upprunalegri mynd og ef það er ekki gerlegt verði krafa um það í nýju deiliskipulagi að sams konar hús og nú stendur á lóðinni verði byggt þar og tryggt að um verði að ræða bárujárnsklætt timburhús, sem ekki muni á nokkurn hátt raska þeirri götumynd sem ákveðið hefur verið að varðveita við Austurgötuna og vernda þannig þann menningarsögulega arf fyrir komandi kynslóð,“ eins og segir á athugasemd hans.
„Í álitsgerð Minjastofnunar og rökstuðningi fyrir afnámi friðunar hússins kemur fram að byggt er á gögnum um ástand hússins, sem unnin eru fyrir lóðarhafa,“ bendir skipulagssviðið á. Mælt sé með að fengið verði álit fleiri og óháðra ráðgjafa á því hvort húsið teljist ónýtt, eða hvort það sé viðgerðarhæft.
„Ef ekki verður unnt að gera við húsið og færa það í upprunalegt horf, verði lögð áhersla á að í hönnun hússins verði stuðst við mælikvarða og hlutföll núverandi húss og byggðarinnar í kring, það verði áréttað í skilmálum deiliskipulagsins,“ segir skipulagssviðið. Vegghæð að götu verði óbreytt og byggingarreitur við húsið verði færður í fyrra horf vegna aukins skuggavarps.
Þá kemur fram að í gangi er dómsmál þar sem eigendur hússins stefndu fyrri eigendum vegna falins galla á húsinu.
Heimild: Visir.is