Home Fréttir Í fréttum Landsvirkjun gerir hlé á smíði nýrra virkjana

Landsvirkjun gerir hlé á smíði nýrra virkjana

133
0
Mynd: Landsvirkjun

Forstjóri Landsvirkjunar segir að arðgreiðslur fyrirtækisins til ríkisins geti á næstu árum vaxið upp í tíu til tuttugu milljarða króna á ári. Framundan er ótímabundið hlé á virkjanaframkvæmdum. Þetta kom fram í viðtali við Hörð Arnarson í fréttum Stöðvar 2.

<>

Í 52 ára sögu Landsvirkjunar hefur raforkusala aldrei verið meiri, tekjurnar aldrei hærri og hagnaðurinn af rekstrinum slær líka met. Fyrirtækið hefur aldrei haft það jafngott og núna.

„Það má segja það að þetta hafi verið besta ár í sögu fyrirtæksins, síðasta ár,“ segir Hörður.

Og eigandinn, ríkissjóður, á von á vænum fúlgum.

„Fyrirtækið er í rauninni núna í stakk búið að fara að auka arðgreiðslur. Það gerist í skrefum. Það er að sjálfsögðu eigandans að ákveða nákvæmlega í hvaða skrefum og tengist náttúrlega stofnun á þessum auðlindasjóð sem við fögnum. En við teljum að á nokkrum árum geti þetta vaxið upp í tíu til tuttugu milljarða, eins og áður var talið,“ segir forstjóri Landsvirkjunar.

Frá vinnusvæðinu við Búrfell. Þar verður ný virkjun gangsett um mitt ár.Stöð 2/Björn Sigurðsson.

Og það er ekki svo að Landsvirkjun hafi haldið að sér höndum í útgjöldum, þvert á móti hefur fyrirtækið verið á útopnu í framkvæmdum, bæði við Þeistareykjavirkjun og Búrfellsvirkjun tvö.

„Þetta eru framkvæmdir upp á yfir fimmtíu milljarða, sem við erum að ljúka á þessu ári, sem við höfum náð að fjármagna algerlega út úr rekstri,“ segir forstjórinn.

Virkjanauppbygging Landsvirkjunar hefur verið tiltölulega samfelld. Þegar einni framkvæmd hefur lokið hefur venjulega verið stutt í þá næstu. Nú eru hins vegar horfur á framkvæmdahléi.

„Við teljum líka að það sé mikilvægt að staldra aðeins við núna. Það er mikil þensla í hagkerfinu og það er dýrt að bjóða út.

Og einnig fögnum við því mjög að það stendur til að gera orkustefnu fyrir landið. Ég held að það sé mikilvægt að það tali saman við framtíðarframkvæmdir.“

Það verður því varla samið um nýja stóriðju á næstu árum.

„Við getum mætt öllum okkar skuldbindingum með þessar virkjanir. En það er hins vegar mikil eftirspurn eftir orku, sem mun ekki verða hægt að mæta allri.“

Landsvirkjun hyggst þó halda áfram að undirbúa fleiri virkjanir og afla leyfa.

-En þýðir þetta að þá yrði kannski tveggja, þriggja, fjögurra ára framkvæmdahlé?

„Já, það gæti alveg orðið. Það hefur oft orðið áður í starfsemi Landsvirkjunar,“ svarar Hörður.

Heimild: Visir.is