Bæjarstjórn Hveragerðisbæjar samþykkti deiliskipulagið á fundi sínum í júlí. Heildarfjöldi íbúða verður 60 til 70 í tveggja til þriggja hæða fjölbýlishúsum með 2 til 4 herbergja íbúðum frá 60 til 100 fermetrar að stærð.
Eigandi lóðarinnar að Þelamörk 52 til 54 hefur nú kært deiliskipulagið og krefst þess að framkvæmdir verði stöðvaðar meðan málið sé til meðferðar hjá úrskurðarnefnd umhverfis-og auðlindamála. Á lóðinni hefur verið rekið gróðurhús og garðplöntusalan Borg frá árinu 1975.
Í kærunni, sem var lögð fram á fundi bæjarráðs á fimmtudag, er því haldið fram að fyrirhugaðar byggingar muni hafa veruleg áhrif á rekstur gróðurhússins og garðplöntusölunnar og valda „gríðarlegu fjártjóni.“ Framkvæmdirnar muni nánast eyðileggja framtíðarmöguleika lóðarinnar og því sé grenndarréttur hans ekki virtur.
Í kærunni segir enn fremur að eigandi plöntusölunnar hafi orðið sér úti um matsgerð frá Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins þegar deiliskipulagið var fyrst kynnt. Samkvæmt matsmönnum myndu byggingarnar á Eden-reitnum hafa veruleg áhrif á vaxtarskilyrði plantna og rýra bæði framleiðslumöguleika gróðurstöðvarinnar og verðgildi.
Bærinn ákvað í framhaldinu að lækka tvær byggingar en eigandi Borgar segir þetta litlu skipta. Þrjú tveggja hæða fjöleignarhús skapi verulegt skuggvarp á lóð hans. Hann telur bæjarstjórn sveitarfélagsins ekki hafa rannsakað hvaða grenndaráhrif byggingarnar á fjórum lóðum myndu hafa á lóð hans og því sé farið fram á að nýtt deiliskipulag lóðarinnar verði ógilt og framkvæmdir stöðvaðar meðan málið sé til meðferðar.
Þetta er ekki eina málið sem hefur komið upp í tengslum við uppbygginguna á Eden-reitnum. Hveragerðisbær bauðst til að greiða húsfélaginu að Reykjamörk 2 bætur upp á 2,5 milljónir þar sem ein af nýbyggingunum gengi að hluta inn á lóð húsfélagsins og minnkaði hana um 309 fermetra. Bærinn hét því jafnframt að sjá til þess að ekki yrði raskað við hól á suðurhorni lóðarinnar sem íbúarnir telja að sé álfahóll.
Heimild: Ruv.is