Home Fréttir Í fréttum Krefjast réttlætis fyrir konuna í Garðabæ: “Búið að taka af henni allt...

Krefjast réttlætis fyrir konuna í Garðabæ: “Búið að taka af henni allt sem hún átti“

92
0
VÍSIR/VALLI

Fjölskylda 85 ára konu sem nýlega beið lægri hlut í Hæstarétti vegna skemmda sem einbýlishús hennar í Garðabæ varð fyrir segir málinu ekki lokið. Vonast fjölskyldan til aukinnar umræðu um málið sem verði til þess fallin að bærinn komi til móts við konuna á einhvern hátt.

<>

Kristjana María Ásbjörnsdóttir, barnabarn konunnar, segir óréttlætið hafa sigrað. Framkoma sveitarfélagsins við ömmu hennar sé með öllu óásættanleg.

Ekkert móttilboð
„Þó það væri ekki nema að Garðabær myndi kaupa húsið og lóðina af ömmu, þá strax yrði þetta betra. Bærinn hafði samband við okkur eftir Kastljóssviðtalið sem amma fór í eftir að dómurinn féll og bauðst til að gera tilboð í húsið. Þegar við komum með tölu þá neitaði bærinn og kom aldrei með móttilboð,“ segir Kristjana. Hún bætir við að upphæðin hafi verið í samræmi við fasteignaverð hússins.

Húsið er óíbúðarhæft og sagt heilsuspillandi, en talið er að kostnaður við endurbyggingu þess nemi um 46 milljónum króna.

Húsið er staðsett á gatnamótum Goðatúns og Silfurtúns í Garðabæ. Bærinn réðist í endurbætur á síðarnefndri götu árið 2008 en konan taldi framkvæmdirnar hafa valdið sigi á húsinu. Hún fór því í skaðabótamál við bæinn og vann það í Héraðsdómi Reykjaness árið 2013. Bænum var þá gert að greiða henni 35 milljónir króna en áfrýjaði dómnum til Hæstaréttar. Þeim dómi var snúið við.

Allir sjóðir tómir
„Við viljum halda málinu gangandi, því af okkar hálfu er þetta ekkert búið. Okkur langar að gera meira en við erum bara venjuleg fjölskylda. Það er enginn ríkur og við tæmdum alla sjóði í þessi dómsmál sem kostuðu um níu milljónir. Húsið og garðurinn var það eina sem amma átti, hún er öreigi og lifir bara á því sem hún fær í ellilífeyri,“ segir Kristjana og bætir við að amma hennar búi nú í lítilli leiguíbúð í Garðabæ.

Húsið er óíbúðarhæft og sagt heilsuspillandi, en talið er að kostnaður við endurbyggingu þess nemi um 46 milljónum króna.

„Þrátt fyrir að hún geti ekki búið í húsinu lengur þá fer hún reglulega í garðinn sinn og vinnur í honum. Hún er kona sem hefur unnið alla sína ævi en núna er búið að taka af henni allt sem hún átti. Hún eyðir samt löngum stundum í garðinum, er þar alltaf á hnjánum, og hugsar um blómin sín sem hún elskar svo mikið.“

Fjölskyldan opnaði Facebook-síðu henni til stuðnings fyrir viku síðan.

Heimild: Vísir.is