F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í verkið:
Grassláttur við þjóðvegi í Reykjavík 2018 – 2020. EES útboð nr. 14152
Lauslegt yfirlit yfir verkið:
Verkið felst í grasslætti og hirðingu á eyjum og svæðum meðfram þjóðvegum í Reykjavík.
Helstu magntölur eru:
· Heildarmagn grassláttar á ári er um 450 ha.
Verklok: 31. ágúst 2020.
Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 14:00, þann 6. febrúar 2018.Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku.
Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Register“ eða „Nýskráning“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef innkaupadeildar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef innkaupadeildar Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 8. mars 2018.