Vinna við Advania gagnaver í Reykjanesbæ er í fullum gangi, en það búið er að afhenda verkkaupa byggingar 4 og 5. Byggingar 1-3 voru reistar á árunum 2014-16 og helmingur af húsi 4 var reist 2017. Hver bygging er um 1.250 m2.
Verkið fellst í jarðvinnu, burðarvirki og fullum frágang að utan. Burðarvirki samanstendur af staðsteyptum sökklum og límtré, byggingarnar eru svo klæddar með yleiningum.
Framkvæmdir hafa gengið vonum framar þrátt fyrir vetrarveður. En stefnt er á að afhenda verkaupa síðustu byggingarnar á vormánuðum 2018.
ÍAV með um 35 manns að störfum við framkvæmdir að meðtöldum undirverktökum.
Heimild: Facebooksíða IAV